Fréttir

true

Skammvinnt rafmagnsleysi á Mýralínu í nótt

„Stutt rafmagnsleysi verður á Mýralínu vegna flutnings á farmi undir línur í nótt. Dagsetning 03.10.2024 frá kl. 00:01 kl. 03:00. Rafmagnsleysið verður stutt en ekki er hægt að tímasetja þetta nánar,“ segir í tilkynningu frá Rarik.Lesa meira

true

Landbúnaðarháskóli Íslands hlaut viðurkenninguna Bronsdekkið

Ársfundur Orkustofnunar var haldinn í Hofi á Akureyri síðastliðinn fimmtudag. Þar var hvatakerfi um orkuskipti bifreiða ríkisstofnana hleypt af stokkunum. Landbúnaðarháskóli Íslands fékk viðurkenninguna Bronsdekkið en 37% bílaflota skólans eru hreinorkubílar. Alls fengu 24 stofnanir og fyrirtæki boð um að koma og veita viðurkenningu viðtöku. Í þessum fyrsta áfanga er horft til bílaflota sem eru…Lesa meira

true

Sokkaboðsund og blómlegir heilsudrykkir í miðnætursundi

Yfir 80 manns mættu í miðnætursund í sundlaug Stykkishólms síðastliðið fimmtudagskvöld. Boðið var upp á heilsudrykk með ætum blómum, notaleg lýsing var sett upp og spiluð tónlist. Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðins, var með sögustund í heitum potti áður en Magnús Bæringsson, íþrótta – og tómstundafulltrúi sveitarfélagsins Stykkishólms, bauð upp á Mullers æfingar á sundlaugarbakkanum. Keppt…Lesa meira

true

Útleysing hjá Norðuráli orsakaði rafmagnsleysi fyrir norðan

Íbúar um vestanvert landið tóku eftir að rafmagnið blikkaði um kl. 12:25 í dag. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Rarik varð truflun á flutningskerfi Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli á Grundartanga. „Þessi truflun hafði áhrif á víðfeðm svæði, þar með talin Glerárskóg á Vesturlandi, Norðurland og austur á firði, sem leiddu til rafmagnsleysis. Landsnet og…Lesa meira

true

Sveipa byggingar bleikum ljóma í október

Krabbameinsfélag Borgarfjarðar stendur fyrir því að minna á mikilvægi skimunar fyrir krabbameini og forvarnir með því að sveipa nokkrar fallegar byggingar bleikum lit. Í langan tíma hefur Borgarneskirkja skartað bleikum lit í október og gerir áfram, en nú bætast fleiri við, svo sem Reyholtskirkja, Hvanneyrarkirkja og hús gamla Héraðsskólans í Reykholti. Kynntir eru bleikir viðburðir…Lesa meira

true

Hvernig ætli lömbin verði í haust?

Kíkt við í lambaskoðun á Dalsmynni í Eyja- og Miklaholtshreppi Fyrirsögnin vísar til þeirrar spurningar sem jafnan er ofarlega í huga sauðfjárbóndans. Svo þegar féð kemur af afrétti að hausti tekur við allskyns fjárrag og smám saman skýrist hvernig lömbunum hefur gengið að vaxa og bæta sig á afréttinum. Lambaskoðanir og sláturtíð er nú í…Lesa meira

true

Stýrivextir lækkaðir um kvart prósentustig

Seðlabanki Íslands tilkynnti í morgun um ákvörðun sína að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Eftir lækkunina eru stýrivextir engu að síður 9%, eða með þeim hæstu í Evrópu. Þetta var fyrsta stýrivaxtalækkunin síðan í ágúst 2023. Fram kom hjá Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra að verðbólga er nú 5,4% og sagði hann greinileg kólnunarmerki í samfélaginu. Því…Lesa meira

true

Hnyklar vöðvana við pokann

Þessa dagana er róið stíft á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH frá Ólafsvík. Meðal skipverja er Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns sem tók á mánudaginn þessa skemmtilegu mynd. Þarna er Höskuldur Árnason að sperra vöðvana en á krananum er Elías Róbertsson.Lesa meira

true

Dagur Snorra Sturlusonar var haldinn hátíðlegur

Laugardaginn 21. september var haldinn hátíðlegur Dagur Snorra Sturlusonar. Þema dagsins var; „Snorri og ritmenning íslenskra miðalda“.  Reiknað er með að halda árlega upp á Dag Snorra í kringum ártíð hans, 23. september, en þetta var í fyrsta sinn sem haldið var upp á daginn með þessu sniði. Að dagskrárhaldi komu fjölmargir aðilar, bæði innlendir…Lesa meira