
Kristófer Högni og faðir hans, Daníel Kazmi ásamt Daníel Þór og faðir hans, Ari Baldur tóku vel á því í boðsundi. Ljósmyndir: Hlédís Sveinsdóttir
Sokkaboðsund og blómlegir heilsudrykkir í miðnætursundi
Yfir 80 manns mættu í miðnætursund í sundlaug Stykkishólms síðastliðið fimmtudagskvöld. Boðið var upp á heilsudrykk með ætum blómum, notaleg lýsing var sett upp og spiluð tónlist. Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðins, var með sögustund í heitum potti áður en Magnús Bæringsson, íþrótta – og tómstundafulltrúi sveitarfélagsins Stykkishólms, bauð upp á Mullers æfingar á sundlaugarbakkanum.