
Útleysing hjá Norðuráli orsakaði rafmagnsleysi fyrir norðan
Íbúar um vestanvert landið tóku eftir að rafmagnið blikkaði um kl. 12:25 í dag. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Rarik varð truflun á flutningskerfi Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli á Grundartanga. „Þessi truflun hafði áhrif á víðfeðm svæði, þar með talin Glerárskóg á Vesturlandi, Norðurland og austur á firði, sem leiddu til rafmagnsleysis. Landsnet og Rarik vinna nú að greiningu á orsökum truflunarinnar og enduruppbyggingu kerfisins.“ Þá segir að mikil eftirspurn sé eftir þjónustu símkerfis Rarik vegna þessa atviks; „og við biðjum viðskiptavini um þolinmæði meðan unnið er að því að koma rafmagni á aftur. Skilaboð þessi verða uppfærð um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir,“ segir á heimasíðu Rarik.