
Stríðsleikur byggður á texta Snorra um Harald harðráða.
Dagur Snorra Sturlusonar var haldinn hátíðlegur
Laugardaginn 21. september var haldinn hátíðlegur Dagur Snorra Sturlusonar. Þema dagsins var; „Snorri og ritmenning íslenskra miðalda“. Reiknað er með að halda árlega upp á Dag Snorra í kringum ártíð hans, 23. september, en þetta var í fyrsta sinn sem haldið var upp á daginn með þessu sniði. Að dagskrárhaldi komu fjölmargir aðilar, bæði innlendir og erlendir, og var dagskráin allvel sótt.