Fréttir

true

Veik von um Evrópusæti hjá ÍA eftir tap gegn Stjörnunni

Stjarnan og ÍA áttust við í annarri umferð efri helmings Bestu deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Samsungvellinum í Garðabæ. Aðstæður til að leika knattspyrnu voru með besta móti, kalt en lítill vindur og stemningin afar góð hjá þeim rúmlega sex hundruð áhorfendum sem létu vel í sér heyra nánast allan…Lesa meira

true

Lögreglan á Vesturlandi fær viðurkenningu

Á ársfundi Orkustofnunar, sem haldinn var síðastliðinn fimmtudag í Hofi á Akureyri, var hvatakerfi um orkuskipti bifreiða ríkisstofnana hleypt af stokkunum. Lögreglan á Vesturlandi fékk á ársfundinum viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum bifreiðaflota embættisins. Á vefsíðu Lögreglunnar á Vesturlandi segir: „Við fengum ,,Silfurdekkið“ sem er fyrir að vera komin upp fyrir 60% hreinorku en embættið…Lesa meira

true

Árvekniátak Krabbameinsfélagsins hafið – Bleika slaufan komin í sölu

Í dag, þriðjudaginn, 1. október hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins, Bleika slaufan. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að aðstandendum undir slagorðinu „Þú breytir öllu.“  Slaufan í ár er fagurbleikur og skínandi blómakrans fléttaður úr þremur nýútsprungnum blómum. Kransinn samanstendur af vafningum sem vefjast um hvern annan og tákna þannig þá umhyggju og stuðning sem við…Lesa meira

true

Auglýsa styrki vegna verslunar í dreifbýli

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna „Verslun í dreifbýli.“ Allt að 17 milljónum króna verður veitt vegna ársins 2025. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina. Markmið aðgerðarinnar er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum…Lesa meira

true

Gistináttum fækkaði í landshlutanum

Gistinætur á hótelum í ágúst voru rúmlega 608.700 á landsvísu, eða um 2,3% fleiri en á sama tíma árið 2023 þegar þær voru 595.100. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands. Mest fjölgaði gistináttum á Suðurlandi (5,6%) og á höfuðborgarsvæðinu (4,9%). Minni aukning var á Norðurlandi eða 2,8%. Samdráttur var í öðrum landshlutum þar sem…Lesa meira

true

Ný Björg komin til landsins

Upp úr hádegi í dag var Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn. Björg er fjórða skipið í nýsmíðaverkefni Landsbjargar og mun leysa af hólmi skip með sama nafni í rekstri Lífsbjargar í Rifi á Snæfellsnesi. Það skip var smíðað árið 1988 og er því orðið 36 ára gamalt.…Lesa meira

true

Alvarlegar athugasemdir koma fram í skýrslu um barnaverndarþjónustu

Athugun Gæða- og eftirlitsstofnunar (GEV) velferðarmála á gæðum barnaverndarþjónustu í sveitarfélaginu Borgarbyggð leiddi m.a. í ljós óskýra verkferla, skort á leiðbeiningum til starfsfólks og brot gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var á vef GEV í dag. GEV tók ákvörðun í mars 2023 um að hefja frumkvæðiseftirlit í formi athugunar á…Lesa meira

true

Gisting og fæði á 40 þúsund fyrir ríkisstarfsmenn

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Tekur breytingin gildi á morgun, 1. október. “Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess,” segir í tilkynningu. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á…Lesa meira

true

Símenntun á Vesturlandi velur sigurvegara í ljósmyndakeppni

Ljósmynd Michaelu Hrómadkóvu á Snæfellsnesi hefur verið valin sigurmynd í ljósmyndakeppni Símenntunar Vesturlands. Keppnin átti að snúast um fjölmenningu. Ljósmynd Michaelu (sjá hér að neðan) vakti sérstaka athygli dómnefndar en hún fangar á fallegan hátt mikilvægi mannlegra tengsla í nútímasamfélagi og dregur einnig fram þvermenningarleg samskipti. Myndin varpar ljósi á eitt af gildum Fjölmenningarskóla Vesturlands;…Lesa meira

true

Sumartónleikar Hallgrímskirkju haldnir í sjötta sinn í sumar

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarðarsveit voru haldnir í sjötta sinn í sumar og í ár voru haldnir níu tónleikar sem fram fóru á sunnudögum. Meðal flytjenda voru Djasstríó Þórs Breiðfjörð, Kammerhópurinn Kvika sem skipaður er söngfólki úr heimabyggð, strengjakvartettinn Kordó, Guja Sandholt ásamt hollenskum tónlistarkonum, Blood Harmony sem skipuð er þremur norðlenskum systkinum,…Lesa meira