
Strengjakvartettinn Kordó hélt tónleika í Saurbæjarkirkju í sumar.
Sumartónleikar Hallgrímskirkju haldnir í sjötta sinn í sumar
Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarðarsveit voru haldnir í sjötta sinn í sumar og í ár voru haldnir níu tónleikar sem fram fóru á sunnudögum. Meðal flytjenda voru Djasstríó Þórs Breiðfjörð, Kammerhópurinn Kvika sem skipaður er söngfólki úr heimabyggð, strengjakvartettinn Kordó, Guja Sandholt ásamt hollenskum tónlistarkonum, Blood Harmony sem skipuð er þremur norðlenskum systkinum, Stephan Kaller, þýskur píanóleikari og Pfälzische Kurrende, þýskur stúlknakór. Ofangreindir flytjendur glöddu fjölmarga tónleikagesti í sumar með fallegum flutningi verka sinna.