Fréttir

Gisting og fæði á 40 þúsund fyrir ríkisstarfsmenn

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Tekur breytingin gildi á morgun, 1. október. "Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess," segir í tilkynningu. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

Gisting og fæði á 40 þúsund fyrir ríkisstarfsmenn - Skessuhorn