Fréttir

true

Örnólfsdalsárbrú á nú 125 ára afmæli

Örnólfsdalsárbrú sem liggur yfir Þverá við Norðtungu er elsta hengibrú landsins sem enn stendur. Hún var byggð árið 1899 en gerð upp af miklum myndugleik af Vegagerðinni árið 2011. Nýverið voru sett upp upplýsingaskilti við brúna til að fræða gesti og gangandi um þetta merkilega samgöngumannvirki. Í lok 19. aldar lágu helstu leiðir í Borgarfirði…Lesa meira

true

Ný bók um alla helstu náttúruvá

Út er komin ný bók eftir Ara Trausta Guðmundsson, jarðvísindamann, rihöfund og fyrrum þingmann, um náttúruvá á Íslandi, ógnir, varnir og viðbrögð. Bókin er 190 síður í broti 14×20,5 cm og með fjölda mynda. Fjallar hún um vá af völdum jarðskjálfta, alls konar eldvirkni, alls konar ofanflóða, sjávarflóða, vatnavaxta, jökulhlaupa, gróðurelda og um vá af…Lesa meira

true

Geðlestin á ferðinni í Gulum september

Geðlest Geðhjálpar verður á ferðinni næstu daga og verða viðburðir í Safnaðarheimili Patreksfjarðarkirkju mánudaginn 30. september kl. 20 og í félagsheimilið Klifi í Ólafsvík þriðjudaginn 1. október kl. 20. Í boði verður geðfræðsla og tónleikar með Emmsje Gauta og Þormóði. Þá verða einnig hádegisfundir með sveitarstjórnum, starfsfólki skóla- og velferðarmála á Ísafirði og í Stykkishólmi.…Lesa meira

true

Kjötsúpuveisla eftir árangursríkt púttsumar

Pútthópur Borgarbyggðar hefur æft af krafti allt þetta ár tvisvar í viku. Ef mótin eru talin með hefur hópurinn leikið saman 76 sinnum á árinu. Ingimundur Ingimundarson þjálfari og stjórnandi starfseminnar segir að síðasta æfingin fyrir hálfsmánaðar hlé hafi farið fram að Hamri á fimmtudaginn með einpútts útsláttarkeppni. Þessi keppni hefur hlotið nafnið Spretttur innan…Lesa meira

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu

Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru…Lesa meira

true

Hestbúið fært undir Hvanneyrarbúið um áramótin

Um langt skeið hefur verið rætt um að færa sauðfjárræktarbúið á Hesti undir Hvanneyrarbúið ehf. „Nú hefur verið tekin ákvörðun um að það verði gert um næstu áramót. Háskólaráð og stjórn Hvanneyrarbúsins hafa fjallað um málið og samþykkt yfirfærsluna,“ skrifar Ragnheiður I Þórarinsdóttir rektor í vikulokapistli sínum. „Lögð er áhersla á að læra af þeirri…Lesa meira

true

Skyr sem menningararfur

Skyr hefur um aldir verið vinsæll matur hér á landi og var skyr langalgengasta mjólkurvaran á Íslandi ásamt smjöri og mysu. Líklega hefur skyrið á landnámsöld verið ólíkt því sem við þekkjum í dag, bæði súrara og þynnra. Mikil breyting hefur orðið á framleiðslu skyrs á síðustu öld með tilkomu verksmiðjuframleiðslu þess. Skyr er mikilvægur…Lesa meira

true

Fjölþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga er nú í gangi

Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum munu á næstu tveimur vikum æfa viðbrögð við ýmsum ógnum á hinni árlegu Northern Challenge. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast og skipuleggur. Alls er 320 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja Sjálandi, Svíþjóð, Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi…Lesa meira

true

Markaðsstofa Vesturlands heimsótti Færeyjar

Vestnorden kaupstefnan er mikilvægasti vettvangur viðskipta í ferðaþjónustu á Norður – Atlantshafssvæðinu og er hún haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum eða á Grænlandi. Starfsfólk Markaðsstofu Vesturlands, auk fjögurra fyrirtækja frá Vesturlandi, heimsótti Þórshöfn í Færeyjum af þessu tilefni. Fyrirtækin fjögur voru Láki Tours, Hótel Varmaland, Hótel Hamar…Lesa meira

true

Mældur á ofsahraða og reyndi að flýja lögreglu

Fólksbíll var seint í gærkvöldi mældur af tveimur lögreglubílum á 160 kílómetra hraða á þjóðveginum við Hafnarfjall. Var bílnum ekið í norðurátt. Ökumaðurinn sinnti ekki beiðni um að stöðva bifreið sína, jók hraðann og mældist mest á 180 km hraða. Beygði hann inn á Borgarfjarðarbraut á Seleyrinni og þaðan inn á Hvítárvallaveg á móts við…Lesa meira