
Hér er Þorgrímur Einar Guðbjartsson mjólkurfræðingur og bóndi á Erpsstöðum að vinna við skyrgerð, en skyrið frá Rjómabúinu hans kemst næst því skyri á markaði í dag að vera eins og fyrir áratugum síðan. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Skyr sem menningararfur
Skyr hefur um aldir verið vinsæll matur hér á landi og var skyr langalgengasta mjólkurvaran á Íslandi ásamt smjöri og mysu. Líklega hefur skyrið á landnámsöld verið ólíkt því sem við þekkjum í dag, bæði súrara og þynnra. Mikil breyting hefur orðið á framleiðslu skyrs á síðustu öld með tilkomu verksmiðjuframleiðslu þess. Skyr er mikilvægur hluti af menningararfi okkar Íslendinga og því þykir nauðsynlegt að öðlast meiri þekkingu á afurðinni.