Mældur á ofsahraða og reyndi að flýja lögreglu

Fólksbíll var seint í gærkvöldi mældur af tveimur lögreglubílum á 160 kílómetra hraða á þjóðveginum við Hafnarfjall. Var bílnum ekið í norðurátt. Ökumaðurinn sinnti ekki beiðni um að stöðva bifreið sína, jók hraðann og mældist mest á 180 km hraða. Beygði hann inn á Borgarfjarðarbraut á Seleyrinni og þaðan inn á Hvítárvallaveg á móts við Hvanneyri. Alls voru þrír lögreglubílar í verkefninu og auk þess var beðið um að sjúkrabíll yrði tiltækur, eins og jafnan er gert í tilvikum sem þessum. Að sögn Ásmundar Kr Ásmundssonar yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi var veruleg hætta á ferðum. Á Hvítárvallavegi á móts við Grímarsstaði slær ökumaðurinn af og stöðvar bílinn. Þrennt reyndist vera innan borðs, allt ungt fólk. Hins unga ökumanns bíða háar sektir fyrir athæfi sitt, ofsaakstur og hlýða ekki fyrirmælum, auk þess að vera sviptur ökuréttindum á staðnum. Sökum þess að ökumaðurinn var undir 18 ára aldri hafði lögregla samband við foreldra og barnaverndaryfirvöld.

Ásmundur getur þess að vel hafi reynst í þessari aðgerð lögreglu að vera á Tesla lögreglubílum, þetta séu afar kraftmiklir bílar sem henti vel við aðstæður sem þessar.

Mældur á ofsahraða og reyndi að flýja lögreglu - Skessuhorn