
Reiðubúin á vettvangi. Ljósm. lhg
Fjölþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga er nú í gangi
Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum munu á næstu tveimur vikum æfa viðbrögð við ýmsum ógnum á hinni árlegu Northern Challenge. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast og skipuleggur. Alls er 320 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja Sjálandi, Svíþjóð, Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi sem taka þátt að þessu sinni.