
Glaðir viðtakendur gjafanna í Úkraínu. Ljósm. kfum.is
Jól í skókassa til barna í Úkraínu
Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru sendar til Úkraínu en þar geisar stríð og margir sem búa við slæmar aðstæður og kröpp kjör. Að því er fram kemur á heimasíðu KFUM og KFUK er íslensku skókössunum meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Gjöfunum hefur fjölgað ár frá ári og farið upp í 5.575 gjafir frá Íslandi.