
Ný bók um alla helstu náttúruvá
Út er komin ný bók eftir Ara Trausta Guðmundsson, jarðvísindamann, rihöfund og fyrrum þingmann, um náttúruvá á Íslandi, ógnir, varnir og viðbrögð. Bókin er 190 síður í broti 14x20,5 cm og með fjölda mynda. Fjallar hún um vá af völdum jarðskjálfta, alls konar eldvirkni, alls konar ofanflóða, sjávarflóða, vatnavaxta, jökulhlaupa, gróðurelda og um vá af völdum veðurlags. Einnig um hættumat, áhættumat, vöktun og skipulagsmál, almannavarnir og neyðarhjálp. Ensk útgáfa er væntanleg í vetrarbyrjun. Fróðleg og tímabær bók, meðal annars handa almenningi, námsfólki, viðbragðsaðilum og kjörnum fulltrúum. Mál og menning - Forlagið gefur bókina út.