Örnólfsdalsbrú er glæsilegt mannvirki í ljósi aldurs og sögu hennar. Norðtungukirkja handan ár. Ljósm. hig

Örnólfsdalsárbrú á nú 125 ára afmæli

Örnólfsdalsárbrú sem liggur yfir Þverá við Norðtungu er elsta hengibrú landsins sem enn stendur. Hún var byggð árið 1899 en gerð upp af miklum myndugleik af Vegagerðinni árið 2011. Nýverið voru sett upp upplýsingaskilti við brúna til að fræða gesti og gangandi um þetta merkilega samgöngumannvirki.

Örnólfsdalsárbrú á nú 125 ára afmæli - Skessuhorn