
Geðlest Geðhjálpar verður á ferðinni næstu daga og verða viðburðir í Safnaðarheimili Patreksfjarðarkirkju mánudaginn 30. september kl. 20 og í félagsheimilið Klifi í Ólafsvík þriðjudaginn 1. október kl. 20. Í boði verður geðfræðsla og tónleikar með Emmsje Gauta og Þormóði. Þá verða einnig hádegisfundir með sveitarstjórnum, starfsfólki skóla- og velferðarmála á Ísafirði og í Stykkishólmi.…Lesa meira








