
Mynd tekin við formlega afhendingu Milou búnaðarins, rafrænnar vistunar hjartsláttarrita barna í móðurkviði. Fulltrúar kvenfélagskvenna en fjórða frá vinstri er Hrafnhildur Ólafsdóttir deildarstjóri HVE. Ljósm. mm
Kvenfélagskonur gefa búnað til fæðingadeildar HVE á Akranesi
Í gær var hátíðleg stund á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Þá afhentu fulltrúar Kvenfélagasambands Íslands fæðingadeild HVE hugbúnað sem gerir það kleift að miðlægt verður hægt að fylgjast með fósturhjartslætti og hjartslætti barns eftir fæðingu á fæðingadeildum á landsbyggðinni - og tengjast sérfræðingum á kvennadeild Landspítalans. Fram kom við afhendingu gjafarinnar að þessi búnaður mun leiða til minni ferðalaga þungaðra kvenna milli landshluta í eftirlit á meðgöngu. Kostir búnaðarins eru m.a. aukið öryggi barns og móður, rafræn vistun hjartsláttarrita og því minni pappírsnotkun. Hægt verður að fylgjast með hjartslætti í rauntíma en upplýsingarnar eru einnig vistaðar og því eftirá hægt að skoða þær upplýsingar sem safnað er.