Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Brákarhlíð í Borgarnesi. Ljósm. mm

Senda erindi til Heilbrigðisráðuneytis vegna HVE í Borgarnesi

Á fundi byggðarráðs Borgarfjarðar í gær var umræða um aðstöðu og aðkomu að húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) í Borgarnesi í framhaldi af erindi sveitarstjórnar Borgarbyggðar dagsett 13. september sl. þess efnis að senda erindi til heilbrigðisráðuneytisins og HVE um húsnæði og aðbúnað á HVE í Borgarnesi. Í erindinu er fagnað að fyrstu skref hafa verið stigin til endurbóta og á tækjabúnaði en um leið lýst áhyggjum af því að skrefin verði bæði lítil og hæg. Í framhaldi hafa átt sér stað góð og upplýsandi samskipti við HVE.

Senda erindi til Heilbrigðisráðuneytis vegna HVE í Borgarnesi - Skessuhorn