Fréttir

true

Margir ökumenn að kitla pinnann

Í liðinni viku voru höfð afskipti af um 90 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Fjórir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur en einn þeirra er einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og reyndist sá einnig ekki vera með ökuréttindi í lagi. Fjögur mál komu upp þar sem ökumaður…Lesa meira

true

Minna flutt út af sjávarafurðum á síðasta ári

Flutt voru út tæplega 685 þúsund tonn af sjávarafurðum á árinu 2023 sem er 57 þúsund tonnum minna en árið áður. Útflutningsverðmæti sjávarafurða síðasta árs var um 353 milljarðar króna en var 359 milljarðar árið 2022. Á föstu verðlagi jókst útflutningsframleiðsla um 9% miðað við verðlag ársins 2022. Þetta kemur fram á síðu Hagstofu Íslands.…Lesa meira

true

Hlutfallslega eru flestar íbúðir í byggingu í Hvalfjarðarsveit

Alls voru 16,8% færri íbúðir í byggingu á landinu öllu í september en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á síðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, en stofnunin stóð að talningu íbúða í byggingu á landinu öllu seinni hlutann í ágúst og fyrri hlutann af september. Íbúðum í byggingu fjölgar á milli talninga í 17…Lesa meira

true

Landsvirkjun boðar skerðingu orku til stórnotenda

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Skerðingarnar hefjast 24. október, að öllu óbreyttu. Eins og nýliðin ár er ástæðan sögð slæm staða miðlunarlóna á Þjórsársvæði. Þótt vætusamt hafi verið á láglendi í sumar var ekki sama uppi á teningnum á hálendinu. Þar var þurrt og jafnframt kalt,…Lesa meira

true

Arnar á fjalir Landnámsseturs

Fyrsta frumsýning vetrarins á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi verður laugardaginn 28. september. Þá mun Arnar Jónsson leikari stíga á stokk og flytja úrval ljóða sem snert hafa við honum í gegnum tíðina. „Arnar, sem er einn af okkar ástsælustu leikurum og heiðurslistamaður Grímunnar 2023, hefur um árabil getið sér gott orð fyrir sinn einstaka flutning…Lesa meira

true

Sökklar að nýju íþróttahúsi við Heiðarborg

Stærsta einstaka framkvæmd Hvalfjarðarsveitar um þessar mundir er bygging nýs íþróttahúss við Heiðarborg. Jarðvegsframkvæmdir hófust snemma í vor og sökklar komnir eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Talsverð steypuvinna við grunn er framundan. Áætluð verklok fyrsta áfanga verksins er 1. júlí á næsta ári, en þessi áfangi er í höndum verktakans K16 ehf. Vinnubúðir…Lesa meira

true

Endursteypa brúardekkið yfir Laxá í Leirársveit

Vegagerðin hóf í gær vinnu við viðgerð á brúnni yfir Laxá í Leirársveit á Hringvegi eitt. Byrjað er að brjóta upp brúargólfið og fyrirhugað að endursteypa dekk hennar. Hraði á vinnusvæðinu verður tekinn niður í 30 km/klst. Önnur akreinin verður lokuð og umferð stýrt með umferðarljósum. Gert er ráð fyrir því að viðgerð á brúnni…Lesa meira

true

Skagamenn fóru tómhentir heim úr Kópavogi

Breiðablik og ÍA mættust í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Kópavogsvelli. Þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni efri hlutans og mikið undir því Breiðablik er í harðri baráttu við Víking um Íslandsmeistaratitilinn á meðan Skagamenn eru að eltast við dýrmætt Evrópusæti. Fyrri hálfleikurinn bar þess merki að það…Lesa meira

true

Heiðarskóli gerði Degi náttúrunnar góð skil

Dagur íslenskrar náttúru var á mánudag í liðinni viku og af því tilefni fór skólastarfið í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit alfarið fram í Álfholtsskógi við Akrafjall. Nemendur og starfsmenn nutu íslenskrar náttúru í fallegu umhverfi í alls kyns skemmtilegum leikjum og verkefnum. Í hádeginu voru grillaðir hamborgarar sem vöktu mikla lukku og var þetta mjög góður…Lesa meira

true

Fóru í skólabúðir í Vindáshlíð

Vikuna 9. til 13. september dvaldi 9. bekkur Grunnskóla Borgarfjarðar í skólabúðum í Vindáshlíð í Mosfellsbæ þar sem Jörgen Nilsson, sem er oft kenndur við Laugar, sá um skipulag og dagskrá. Frá GBF fóru ellefu nemendur ásamt þeim sem voru nemendur úr samstarfsskólunum á Vesturlandi; Grunnskólanum í Borgarnesi, Auðarskóla í Dalabyggð, Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og…Lesa meira