
Kristmundur Sumarliðason skipveri á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH í lestinni. Þorskur er sem fyrr verðmætasta útflutningsvaran. Ljósm. úr safni/af.
Minna flutt út af sjávarafurðum á síðasta ári
Flutt voru út tæplega 685 þúsund tonn af sjávarafurðum á árinu 2023 sem er 57 þúsund tonnum minna en árið áður. Útflutningsverðmæti sjávarafurða síðasta árs var um 353 milljarðar króna en var 359 milljarðar árið 2022. Á föstu verðlagi jókst útflutningsframleiðsla um 9% miðað við verðlag ársins 2022. Þetta kemur fram á síðu Hagstofu Íslands.