Frá ferðinni í Vindáshlíð. Ljósm. Heiðarskóli

Fóru í skólabúðir í Vindáshlíð

Vikuna 9. til 13. september dvaldi 9. bekkur Grunnskóla Borgarfjarðar í skólabúðum í Vindáshlíð í Mosfellsbæ þar sem Jörgen Nilsson, sem er oft kenndur við Laugar, sá um skipulag og dagskrá. Frá GBF fóru ellefu nemendur ásamt þeim sem voru nemendur úr samstarfsskólunum á Vesturlandi; Grunnskólanum í Borgarnesi, Auðarskóla í Dalabyggð, Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og Grunnskólanum á Reykhólum.

Fóru í skólabúðir í Vindáshlíð - Skessuhorn