
Flestar íbúðir í byggingu í Hvalfjarðarsveit er í Vallarhverfinu, skammt sunnan við bæjarmörk Akraneskaupstaðar. Þar var í gær, þegar myndin var tekin, verið að vinna við a.m.k. fimm hús og þar af tvö fjölbýlishús. Ljósm. hig
Hlutfallslega eru flestar íbúðir í byggingu í Hvalfjarðarsveit
Alls voru 16,8% færri íbúðir í byggingu á landinu öllu í september en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á síðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, en stofnunin stóð að talningu íbúða í byggingu á landinu öllu seinni hlutann í ágúst og fyrri hlutann af september.