Slæm staða miðað við árstíma er á miðlunarlónum á Þjórsársvæðinu. Hér er mynd af Þórisvatni. Ljósm. úr safni/ Mats Wibe Lund

Landsvirkjun boðar skerðingu orku til stórnotenda

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Skerðingarnar hefjast 24. október, að öllu óbreyttu. Eins og nýliðin ár er ástæðan sögð slæm staða miðlunarlóna á Þjórsársvæði. Þótt vætusamt hafi verið á láglendi í sumar var ekki sama uppi á teningnum á hálendinu. Þar var þurrt og jafnframt kalt, sérstaklega í júní og ágúst, svo bráðnun jökla var ekki mikil.