Hér má sjá nokkur börn af yngsta stigi að leika sér með efniviðinn í skóginum. Ljósm. Heiðarskóli

Heiðarskóli gerði Degi náttúrunnar góð skil

Dagur íslenskrar náttúru var á mánudag í liðinni viku og af því tilefni fór skólastarfið í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit alfarið fram í Álfholtsskógi við Akrafjall. Nemendur og starfsmenn nutu íslenskrar náttúru í fallegu umhverfi í alls kyns skemmtilegum leikjum og verkefnum. Í hádeginu voru grillaðir hamborgarar sem vöktu mikla lukku og var þetta mjög góður dagur í heildina.

Heiðarskóli gerði Degi náttúrunnar góð skil - Skessuhorn