
Á næstu vikum stendur yfir vinna við brúardekk Laxárbrúar við Laxárbakka. Umferðarhraði er tekinn niður í 30 og stýrt með ljósum, á annarri akrein í senn. Ökumenn eru hvattir til að sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu.
Margir ökumenn að kitla pinnann
Í liðinni viku voru höfð afskipti af um 90 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Fjórir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur en einn þeirra er einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og reyndist sá einnig ekki vera með ökuréttindi í lagi. Fjögur mál komu upp þar sem ökumaður reyndist sviptur ökuréttindum eða ökuréttindi ekki til staðar. Tvær minniháttar líkamsárásir komu inn á borð lögreglu í liðinni viku og eru bæði mál í rannsókn. Tvö mál þar sem lítils háttar eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu komu upp og eru þau mál einnig í rannsókn. Tvö minniháttar umferðaróhöpp komu einnig inn á borð lögreglu en bæði án slysa á fólki.