Fréttir

true

Ræddu aðstöðu við íþróttavöll

Á fundi íþrótta- og tómstundanefndar Grundarfjarðarbæjar 5. september fór fram umræða um aðstöðu við íþróttavöllinn. Var rætt um geymslu fyrir tæki og áhöld, aðstöðu til þjálfunar, búnings- og klósettaðstöðu og fleira. Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir, formaður UMFG, var gestur undir þessum dagskrárlið og var rætt um að halda áfram að bæta aðstöðu við íþróttavöll en undanfarin…Lesa meira

true

Nýir göngustígar á skógræktarsvæðinu við Grensás

Mikill kraftur hefur verið í Skógræktarfélagi Stykkishólms undanfarið en nú í sumar hefur göngustígakerfi í Nýræktinni vaxið mikið. Sveitarfélagið hefur síðastliðin ár unnið með félaginu að uppbyggingu á skógræktarsvæðinu við Grensás með það að markmiði að auka útivistarmöguleika í og við Stykkishólm. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að í sumar tók til hendinni sjálfboðaliðahópur frá…Lesa meira

true

Hérumbil safn Gunna Jóns enduropnað og er nú í Brákarey – myndasyrpa

Nú í sumar var Hérumbil safn Gunna Jóns enduropnað í Borgarnesi. Safnkosturinn hefur verið í geymslu frá árinu 2019 þegar Gunnar seldi húsnæðið sem safnið var upphaflega í, en það var bakatil í gömlu símstöðinni við Borgarbraut 12. Nú hefur Gunnar leigt bil í fyrrum fjárréttinni í Brákarey og komið safnkostinum þar haganlega fyrir í…Lesa meira

true

Nýr dýralæknir tekinn við í Búðardal

Ida B. Rognsvag er nýr dýralæknir í Dölum með aðsetur í Búðardal. Hún hefur verið í læri hjá Gísla Sverri Halldórssyni fráfarandi dýralækni á svæðinu síðan í nóvember á síðasta ári. Ida kemur frá bænum Kviteseid í Noregi en hún hóf dýralæknanám árið 2017 og lauk því á síðasta ári. Skessuhorn hitti á Idu í…Lesa meira

true

Sól og blíða í Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal – Myndasyrpa

Leitarfólk á afrétti Lunddælinga kom um kvöldmatarleytið í gær til byggða með fé af fjalli og sögðu smalar að vegna veðurs hafi leitin gengið brösuglega. Vonskuveður var á fjallinu og virtist leitarfólk þreytt eftir undangengna daga. Kvenfélagskonur buðu upp á kaffi og flatkökur með hangikjöti ásamt fjölbreyttu meðlæti fyrir svangt réttarfólkið. Hafist var handa við…Lesa meira

true

Íbúar lýsa áhyggjum sínum yfir væntanlegu mælimastri á Grjóthálsi

Íbúar í Norðurárdal og Þverárhlíð í Borgarfirði boðuðu sveitarstjórn Borgarbyggðar á fund í gærkvöldi vegna fyrirhugaðs mælimasturs á Grjóthálsi. Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 7. júní síðastliðinn drög að nýju deiliskipulagi til auglýsingar fyrir mælimastur fyrir vindorkuver á Grjóthálsi. Að afloknum framlengdum auglýsingartíma tók skipulags- og byggingarnefnd deiliskipulagið fyrir að nýju…Lesa meira

true

Arion banki hækkaði vexti á húsnæðislánum

Arion banki hækkaði í dag vexti á verðtryggðum íbúðalánum. Breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,60 prósentustig og verða 4,64%. Fastir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,74%. Þá hækka verðtryggðir breytilegir kjörvextir um 0,75 prósentustig og verða 6,2%. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að hækkunin sé meðal annars til komin vegna hækkunar á ávöxtunarkröfu…Lesa meira

true

Tafir á umferð á morgun á Vesturlandsvegi við Akrafjallsveg

Á morgun, fimmtudaginn 12. september, mun Malbikstöðin vinna að viðhaldi á Vesturlandsvegi, við gatnamót að Akrafjallsvegi, ef veður leyfir. Framkvæmdir hefjast um kl. 9:00 og áætlað er að þeim ljúki um kl. 16:00 – en verkið er háð veðri og gæti því riðlast aðeins. Framkvæmdir stöðva ekki umferð um framkvæmdasvæðið en þrengt verður að umferð…Lesa meira

true

„Viljum samfélag fyrir fólk, ekki fjármagn“

Fjölmenni mætti á baráttufund á Austurvelli á þingsetningardegi Þrjú af stærstu launþegasamtökum landsins; Alþýðusamband Íslands, BSRB og Kennarasamband Íslands, boðuðu síðdegis í gær til mótmæla á Austurvelli í Reykjavík. Sama dag var Alþingi sett, en hlé var gert á þingfundi meðan mótmælafundurinn stóð yfir. Mótmæli félaganna beindust gegn skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.…Lesa meira

true

Viðgerð lokið á dreifikerfi Rarik í Grundarfirði

Viðgerð á bilun í aðveitustöð Rarik í Grundarfirði er nú lokið. Bilunarinnar varð vart aðfararnótt sunnudags og var skilgreind sem alvarleg strax í upphafi. Náði hún til þéttbýlisins í Grundarfirði og sveitanna í kring. Notast var við varaafl meðan á viðgerðum stóð en nú þarf það ekki lengur og er dreifikerfi komið í eðlilegan rekstur.Lesa meira