Ida B. Rognsvag dýralæknir. Ljósm. hig

Nýr dýralæknir tekinn við í Búðardal

Ida B. Rognsvag er nýr dýralæknir í Dölum með aðsetur í Búðardal. Hún hefur verið í læri hjá Gísla Sverri Halldórssyni fráfarandi dýralækni á svæðinu síðan í nóvember á síðasta ári. Ida kemur frá bænum Kviteseid í Noregi en hún hóf dýralæknanám árið 2017 og lauk því á síðasta ári. Skessuhorn hitti á Idu í húsnæði fyrirrennara síns en hún flutti í húsnæðið við Ægisbraut 19 í Búðardal, þar sem íbúð er á efri hæð en vinnuaðstaða er á neðri hæð.

Nýr dýralæknir tekinn við í Búðardal - Skessuhorn