Haraldur á Hellnum nær í lamb. Ljósmyndir: hig

Sól og blíða í Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal – Myndasyrpa

Leitarfólk á afrétti Lunddælinga kom um kvöldmatarleytið í gær til byggða með fé af fjalli og sögðu smalar að vegna veðurs hafi leitin gengið brösuglega. Vonskuveður var á fjallinu og virtist leitarfólk þreytt eftir undangengna daga. Kvenfélagskonur buðu upp á kaffi og flatkökur með hangikjöti ásamt fjölbreyttu meðlæti fyrir svangt réttarfólkið. Hafist var handa við að reka féð í réttina þar sem sundurdráttur hófst í blíðskaparveðri í morgun.