Fréttir

true

Aníta Lísa tekur við markaðsmálunum

Í dag tekur Aníta Lísa Svansdóttir við markaðsmálum og auglýsingaumsjón hjá Skessuhorni – fréttaveitu Vesturlands. Í starfinu felast samskipti við hundruði viðskiptavina sem auglýsa hvort heldur er á fréttavef eða í vikublaði Skessuhorns. Aníta Lísa hefur á liðnum árum mest starfað við knattspyrnuþjálfun en auk þess sinnt ýmsum störfum fyrir yngri landslið kvenna í knattspyrnu.…Lesa meira

true

Styttist í lokun 2G og 3G farsímaþjónustu

Fjarskiptastofa vekur athygli á því að nú styttist óðum í að eldri farsímaþjónustu, 2G (GSM) og 3G, verði lokað hér á landi. Í febrúar 2022 var efnt til opins samráðs um áætlun farsímafyrirtækja varðandi lokun þjónustunnar. Þá kom fram að farsímafyrirtækin hygðust öll loka 2G og 3G þjónustum sínum í síðasta lagi fyrir árslok 2025.…Lesa meira

true

Vegur niður að Djúpalónssandi lokaður

Vegna framkvæmda verður vegurinn að Djúpalónssandi á Snæfellsnesi lokaður allri umferð dagana 12. – 22. september. Umhverfisstofnun stendur fyrir framkvæmdum á neðra bílastæði við Djúpalónssand þar sem malbikað verður ásamt því að bíla- og rútustæði verða merkt. Bent á er að stikuð gönguleið liggur frá efra bílastæðinu að Djúpalónssandi.Lesa meira

true

Kennarar og nemendur í FVA mættu í gulu

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Á síðastliðnu ári var í fyrsta skipti heill mánuður tileinkaður þessu brýna málefni á Íslandi. Haustið er valið fyrir átakið vegna þess að Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október. Lögð verður áhersla á slagorðin; „Er…Lesa meira

true

Snitzel var ranglega merkt eldað

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á tveimur framleiðslulotum af Ali snitzel frá Síld og fiski vegna rangra merkinga en fyrir mistök var snitzel sem þarfnast eldunar pakkað í umbúðir fyrir fulleldað. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna. Innköllunin á eingöngu við framleiðslulotur: 02.09.24 og 04.09.24, Best fyrir 23.09.24 og 25.09.24. Varan var…Lesa meira

true

Snjókoma og leiðindaveður á leitarfólki

Sauðfjárleitir fara nú fram víðs vegar um landið. Á Norðurlandi var talsvert um að leitum hafi verið flýtt þar sem mjög slæmt veður er þar og appelsínugul viðvörun. Hópur Lunddælinga hélt í leitir í gær. Í morgunsárið var orðin bálhvasst og nokkur snjókomu en einn leitarmanna sendi Skessuhorni mynd af aðstæðum á fjallinu. Réttað verður í…Lesa meira

true

Fyrsta áfanga framkvæmda á Sæunnargötu að ljúka

Fyrsti áfangi við endurbyggingu Sæunnargötu í Borgarnesi er nú á lokametrunum, en verkið er unnið af Borgarverki. Á heimasíðu Borgarbyggðar er sagt frá því að nú taki við annar verkhluti sem er efri hluti Sæunnargötu og sú hjáleið sem er um Kveldúlfsvöll og Berugötu verður lokað.Lesa meira

true

Íbúum boðið á þing til að hafa áhrif á þróun Vesturlands

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða í næstu viku til íbúaþings þar sem til umfjöllunar verður endurskoðun Sóknaráætlunar Vesturlands. Þingið verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi miðvikudaginn 18. september klukkan 16 og áætlað að það standi til kl. 18. Bent er á að nauðsynlegt er að skrá þátttöku (sjá nánar ssv.is), en boðið verður upp á…Lesa meira

true

Íþróttasalurinn á Vesturgötu tekinn í notkun í næstu viku

Samkvæmt áætlun verður íþróttasalurinn á Vesturgötu tekinn til notkunar þriðjudaginn 17. september en íþróttasal og kjallara var lokað með litlum fyrirvara í lok september á síðasta ári vegna loftgæðavandamála. Útskipting á hurðum og uppsetning á loftræstisamstæðunni sem og utanhússklæðningunni verður lokið ef allar áætlanir standast í lok september. Að sögn Önnu Maríu Þráinsdóttur, sem er…Lesa meira