
Íbúum boðið á þing til að hafa áhrif á þróun Vesturlands
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða í næstu viku til íbúaþings þar sem til umfjöllunar verður endurskoðun Sóknaráætlunar Vesturlands. Þingið verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi miðvikudaginn 18. september klukkan 16 og áætlað að það standi til kl. 18. Bent er á að nauðsynlegt er að skrá þátttöku (sjá nánar ssv.is), en boðið verður upp á barnahorn þar sem tekið verður á móti börnum í Kvikunni, skapandi rými Menntaskóla Borgarfjarðar. Þá verður boðið upp á grillveislu að þinghaldi loknu.
„Markmiðið með þinginu er að fá íbúa á Vesturlandi til að koma saman, skiptast á skoðunum og forgangsraða áherslum um hvernig þau vilja sjá Vesturland þróast. Afrakstur þingsins mun verða leiðarljós við frekari vinnu við Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2025-2029. Verum með og tökum þátt. Það er leiðin til þess að hafa áhrif á hvernig Vesturland þróast,“ segir í tilkynningu frá SSV.