Fréttir

true

Afhentu Von rúmar fjórar milljónir í minningu Péturs Sigurðssonar

Í vikunni sem leið fékk Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar Landspítala í Fossvogi, afhentar 4,1 milljón króna að gjöf frá fjölskyldu, vinum, samstarfsmönnum Péturs Sigurðsson frá Akranesi, golfklúbbnum Leyni og öðrum velunnurum. Pétur lést á gjörgæslunni í Fossvogi í júní síðastliðnum í kjölfar vinnuslyss. Söfnunin fór fram í gegnum hlaupahóp í nafni Péturs í…Lesa meira

true

Þrálát rafmagnsbilun í Grundarfirði

Ekki tókst að ljúka viðgerð í aðveitustöð Rarik í Grundarfirði í gær. Varaafl var því keyrt í nótt og í dag, þar til viðgerð lýkur. Rarik óskar eftir að fólk fari sparlega með rafmagn á meðan. Send verður tilkynning þegar viðgerð er lokið. Frekari upplýsingar veitir bilanavakt stjórnstöðvar í síma 528-9000. Allar tilkynningar má sjá…Lesa meira

true

Mesti þéttleiki sandsíla frá upphafi mælinga

Sandsíli hafa verið vöktuð frá árinu 2006 en 30. ágúst síðastliðinn lauk leiðangri rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar þar sem rannsakað var ástand sjávar, sæbjúgna og sandsília. Þetta kemur fram á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar Íslands. Sýni voru tekin á þremur svæðum; Faxaflóa, Vestmannaeyjum að Vík í Mýrdal og við Ingólfshöfða. Í Faxaflóa var magn sandsíla svipað og það…Lesa meira

true

Grunsamlegir stöðvahrútar tilkynntir

Nokkrar ábendingar bárust um lömb í vor undan hrútum á sæðingastöðvum. Lömbin voru eitthvað óeðlileg í framfótum og vangaveltur urðu um hvort hér væri bógkreppa á ferðinni. Þetta kemur fram á heimasíðu Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins. Ekkert kom þó fram sem telja má nægilega afgerandi sönnun, þannig að tilefni væri til að kasta grun á ákveðna hrúta.…Lesa meira

true

Dagur Snorra Sturlusonar er 21. september

Snorrastofa í Reykholti verður með hátíð tileinkaða Snorra Sturlusyni laugardaginn 21. september nk. í Reykholtskirkju. Þema þessa fyrsta Dags Snorra verður; „Snorri og Ritmenning íslenskra miðalda,“ en reiknað er með að viðburðurinn verði árlega héðan í frá. Dagurinn hefst kl. 13 með borðspilaviðburði í sýningarsal Snorrastofu, en sjálf dagskráin hefst síðan kl. 16. Þau sem…Lesa meira

true

Tap í síðasta leik sumarsins hjá Skagakonum

ÍA og Grótta tókust á í síðustu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn í Akraneshöllinni. Mikilvægi leiksins var mismunandi hjá liðunum, ÍA var um miðja deild en Grótta var í hörkubaráttu við Fram um að komast upp í Lengjudeildina ásamt FHL. Fyrsta færi leiksins átti Arnfríður Auður Arnarsdóttir leikmaður Gróttu strax…Lesa meira

true

Áhöfn skútu óskaði eftir aðstoð björgunarskipa

Sjóbjörgunarflokkur Björgunarfélags Akraness var að beiðni Landsbjargar kallaður út í gærkvöldi, en skipverjar á skútu höfðu sent beiðni um aðstoð, komust ekki fyrir eigin vélarafli til lands. Skútan var þá stödd um þrjár sjómílur vestur af Akranesi. Björgunarbátarnir Jón Gunnlaugsson og Margrét Guðbrandsdóttir sigldu með hraði til móts við skútuna og var Jón Gunnlaugsson tilbúinn…Lesa meira

true

Varað við hviðum á Kjalarnesi

“Á Kjalarnesi má reikna með að hviður slái annað veifið upp í 35 m/s þar til eftir hádegi á morgun,” segir í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni. Suðaustanlands hvessir í kvöld og sviptivindar standa jafnframt fram af Vatnajökli í nótt og fyrramálið þvert á veginn. Allt austur fyrir Höfn. Á Skeiðarársandi við Gígjukvísl má…Lesa meira

true

Loppu sjoppan í Stykkishólmi heimsótt

Hrafnhildur Hlín Karlsdóttir og Magdalena Ósk Hansen halda úti loppumarkaði á Nesvegi 13 í Stykkishólmi. Fólk getur þar komið með sín föt og leigt bás í eina til fjórar vikur í senn og selt sínar vörur. „Aðsóknin er að aukast og það hefur verið þörf fyrir svona sjoppu hér í Stykkishólmi. Það hafa margir farið…Lesa meira

true

Viðhorf íbúa á Vesturlandi til ferðamanna og ferðaþjónustu

Ferðamálastofa, í samstarfi við Eyrúnu Jennýju Bjarnadóttur, hefur gefið út skýrslu þar sem kannað er viðhorf íbúa á landinu öllu til ferðamanna og ferðaþjónustu. Helstu niðurstöður hér á Vesturlandi, líkt og í öðrum landshlutum, var almenn ánægja með ástand innviða en þar snéru áhyggjur helst að salernismálum og samgöngum líkt og í fyrri könnunum sem…Lesa meira