Nýfætt lamb með klofinn hrygg. Ljósm. rml.is

Grunsamlegir stöðvahrútar tilkynntir

Nokkrar ábendingar bárust um lömb í vor undan hrútum á sæðingastöðvum. Lömbin voru eitthvað óeðlileg í framfótum og vangaveltur urðu um hvort hér væri bógkreppa á ferðinni. Þetta kemur fram á heimasíðu Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins. Ekkert kom þó fram sem telja má nægilega afgerandi sönnun, þannig að tilefni væri til að kasta grun á ákveðna hrúta. „Gagnvart stöðvahrútunum var ekki að ræða um fleiri en eina tilkynningu tengda hverjum hrúti, einkennin yfirleitt væg, ekki þekktar bógkreppuættir á móti og enginn af þessum hrútum lá þegar undir grun. Allar viðbótarupplýsingar geta því skipt máli, segir í frétt RML.

Grunsamlegir stöðvahrútar tilkynntir - Skessuhorn