Styttan af Snorra. Ljósm. Gunnar Frey Gunnarsson

Dagur Snorra Sturlusonar er 21. september

Snorrastofa í Reykholti verður með hátíð tileinkaða Snorra Sturlusyni laugardaginn 21. september nk. í Reykholtskirkju. Þema þessa fyrsta Dags Snorra verður; „Snorri og Ritmenning íslenskra miðalda,“ en reiknað er með að viðburðurinn verði árlega héðan í frá. Dagurinn hefst kl. 13 með borðspilaviðburði í sýningarsal Snorrastofu, en sjálf dagskráin hefst síðan kl. 16.

Dagur Snorra Sturlusonar er 21. september - Skessuhorn