Varað við hviðum á Kjalarnesi

"Á Kjalarnesi má reikna með að hviður slái annað veifið upp í 35 m/s þar til eftir hádegi á morgun," segir í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni. Suðaustanlands hvessir í kvöld og sviptivindar standa jafnframt fram af Vatnajökli í nótt og fyrramálið þvert á veginn. Allt austur fyrir Höfn. Á Skeiðarársandi við Gígjukvísl má reikna með sandfoki í fyrramálið.