Hrafnhildur Hlín og Magdalena Ósk. Ljósm. hig

Loppu sjoppan í Stykkishólmi heimsótt

Hrafnhildur Hlín Karlsdóttir og Magdalena Ósk Hansen halda úti loppumarkaði á Nesvegi 13 í Stykkishólmi. Fólk getur þar komið með sín föt og leigt bás í eina til fjórar vikur í senn og selt sínar vörur. „Aðsóknin er að aukast og það hefur verið þörf fyrir svona sjoppu hér í Stykkishólmi. Það hafa margir farið af stað með álíka verslanir en alltaf hefur verið skortur á föstu húsnæði. En við erum núna búnar að koma okkur vel fyrir hér,“ segir Hrafnhildur.