Fréttir

true

Kári með aðra höndina á titlinum eftir stig gegn Augnabliki

Kári og Augnablik áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin í Akraneshöllinni. Fyrir leik gat Kári með sigri í leiknum tryggt sér sigur í deildinni á meðan Augnablik var úr leik í toppbaráttunni. Vel var mætt í Akraneshöllina og fá sæti laus enda tilhlökkun að Kári gæti tekið á…Lesa meira

true

Mættur á rakarastofuna að morgni 90 ára afmælisdagsins

Jón Hjartarson hárskeri á Akranesi er 90 ára í dag, 9. september. Hann hefur nú í 75 ár samfleytt starfað sem rakari og kveðst hvergi nærri hættur. Þrátt fyrir tímamótin opnaði hann stofuna sína á slaginu klukkan 9 í morgun í kjallaranum á húsinu sínu við Kirkjubraut 30, en hann býr á efri hæðum þess…Lesa meira

true

Víkingur missti af gullnu tækifæri eftir jafntefli gegn Ægi

Ægir og Víkingur mættust í næstsíðustu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn. Aðstæður voru ágætar til knattspyrnuiðkunar, yfir tíu gráður og smá vindur og völlurinn í ansi góðu ásigkomulagi. Með sigri gátu Ólsarar komist upp í annað sæti deildarinnar að því gefnu að Völsungur og…Lesa meira

true

Vetrarveður norðan heiða og færð gæti spillst

Útlit er fyrir hvassviðri og snjó á norðanverðu landinu og eru ýmist gular eða appelsínugular viðvaranir í gildi fyrir Strandir og austur á firði fram á miðjan dag á morgun. Það verður norðan 8-15 m/s og rigning á Norður- og Austurlandi í fyrstu en slydda eða snjókoma til fjalla, en bjart með köflum sunnan heiða.…Lesa meira

true

Boða til mótmæla á Austurvelli á morgun

Alþýðusamband Íslands, BSRB og Kennarasamband Íslands hafa boðað til mótmæla á Austurvelli á morgun, þriðjudaginn 10. september kl. 16. Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum. „Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila landsins vegna síhækkandi verðs á nauðsynjavörum og húsnæðiskostnaðar. Ástandið bitnar verst á…Lesa meira

true

Yfir hundrað laxar úr Hörðudalsá

„Sæll, já við vorum að koma strákarnir úr Hörðudalsá í Dölum og það gekk vel hjá okkur,“ sagði Sævar Jónsson blikksmiður á Akranesi sem var koma úr ánni og bætti við: „Þegar við fórum heim voru komnir 109 laxar og um 60 bleikjur. Við fengum 14 laxa og sex bleikjur og slepptum nokkrum löxum aftur,…Lesa meira

true

Óvissuferð í mötuneyti Grundaskóla

Á matseðli Grundaskóla á Akranesi alla föstudaga er skráð svokölluð „Óvissuferð.“ Þetta heiti hefur vakið nokkra athygli og hafa nokkrir nemendur spurst fyrir um hvað sé eiginlega í matinn þessa daga. Þessari spurningu er erfitt að svara á einfaldan hátt því fullkomin óvissa er um hvað er í boði í hverri viku. Eitt er þó…Lesa meira

true

Slitlag lagt á veg í Dölum

Síðastliðinn föstudag, þegar blaðamaður Skessuhorns átti erindi í Dalina, var verið að undirbúa slitlagslögn á þjóðveginum milli Fellsenda og Erpsstaða. Slitlagið á þessum vegarkafla eyðilagðist eins og kunnugt er síðastliðinn vetur og var brugðið á það ráð að tæta veginn upp og hefur hann í sumar verið hefðbundinn malarvegur með tilheyrandi holum. Það horfir nú…Lesa meira

true

Vegna bilunar eru Grundfirðingar beðnir að fara sparlega með rafmagn

Alvarleg rafmagnsbilun er í gangi í aðveitustöð Rarik í Grundarfirði. „Rafmagni var komið á eftir varaleiðum í nótt og varaafl verður keyrt eftir þörfum til að tryggja afhendingaröryggi. Viðskiptavinir eru beðnir að fara sparlega með rafmagn. Unnið er að viðgerð,“ segir í tilkynningu frá Rarik. Frekari upplýsingar veitir bilunarvakt stjórnstöðvar Rarik í síma 528-9000. Allar…Lesa meira

true

Smala á fjalli komið til hjálpar

Um hádegisbil í gær voru björgunarsveitir í Borgarfirði kallaðar út vegna smala sem hafði hrasað og slasað sig við smalamennsku í sunnanverðum Skorradal. Á þessum stað er landið erfitt yfirferðar. Björgunarsveitarfólk komst að hinum slasaða á fjórhjólum en félagar hans höfðu beðið með honum eftir aðstoð. Hinum slasaða var komið fyrir á hjóli björgunarsveitar og…Lesa meira