
Luis Alberto (nr. 21) skoraði jöfnunarmarkið á móti Ægi. Hér í leik gegn KFG í byrjun september. Ljósm. af
Víkingur missti af gullnu tækifæri eftir jafntefli gegn Ægi
Ægir og Víkingur mættust í næstsíðustu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn. Aðstæður voru ágætar til knattspyrnuiðkunar, yfir tíu gráður og smá vindur og völlurinn í ansi góðu ásigkomulagi. Með sigri gátu Ólsarar komist upp í annað sæti deildarinnar að því gefnu að Völsungur og Þróttur Vogum myndu gera jafntefli sem varð svo raunin. Heimamenn í Ægi voru hins vegar í 8. sæti og höfðu að litlu að keppa nema auðvitað að hafa áhrif á toppbaráttuna. Gary Martin var ekki í liði Víkings en hann var í leikbanni vegna fjögurra gulra spjalda.