
Vetrarveður norðan heiða og færð gæti spillst
Útlit er fyrir hvassviðri og snjó á norðanverðu landinu og eru ýmist gular eða appelsínugular viðvaranir í gildi fyrir Strandir og austur á firði fram á miðjan dag á morgun. Það verður norðan 8-15 m/s og rigning á Norður- og Austurlandi í fyrstu en slydda eða snjókoma til fjalla, en bjart með köflum sunnan heiða. Hvessir í kvöld og bætir í úrkomu fyrir norðan. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast syðst. Norðan- og norðvestan 10-18 m/s á morgun, en snarpir vindstrengir við fjöll sunnantil. Talsverð rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi, en annars skýjað með köflum. Dregur úr vindi vestanlands og úrkomu á Norðvesturlandi um kvöldið. Hiti breytist lítið.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi bætir í úrkomuna í kvöld. Snjóar ofan um 200-300 metra yfir sjó og áfram fram eftir morgni. Varasamt í nótt og fyrramálið, en þrátt fyrir kalt loftið nær hitinn yfir miðjan daginn yfir frostmarkið á flestum fjallvegum. Frystir síðan aftur annað kvöld.
Ferðamálastofa hvetur alla sem eru í samskiptum við ferðafólk að tryggja öryggi og vellíðan viðskiptavina sinna. "Við biðjum fólk að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til að upplýsa og undirbúa ferðalanga fyrir þau erfiðu veðurskilyrði sem spáð er," segir í tilkynningu.