
Óvissuferð í mötuneyti Grundaskóla
Á matseðli Grundaskóla á Akranesi alla föstudaga er skráð svokölluð „Óvissuferð.“ Þetta heiti hefur vakið nokkra athygli og hafa nokkrir nemendur spurst fyrir um hvað sé eiginlega í matinn þessa daga. Þessari spurningu er erfitt að svara á einfaldan hátt því fullkomin óvissa er um hvað er í boði í hverri viku. Eitt er þó víst að allir fá góðan mat og ekki er víst að allir aldurshópar fái það sama. Það er mikil áskorun fyrir starfsfólk að reka stórt mötuneyti. Að fá 600-800 manns í mat á hverjum degi, reyna að gera öllum til hæfis og vinna með matarsóun á sama tíma.