Byrjunarlið Kára sem lék gegn liði Augnabliks. Ljósm. Kári

Kári með aðra höndina á titlinum eftir stig gegn Augnabliki

Kári og Augnablik áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin í Akraneshöllinni. Fyrir leik gat Kári með sigri í leiknum tryggt sér sigur í deildinni á meðan Augnablik var úr leik í toppbaráttunni. Vel var mætt í Akraneshöllina og fá sæti laus enda tilhlökkun að Kári gæti tekið á móti bikarnum á heimavelli í lok leiks ef úrslitin yrðu hagstæð. Meðalaldur byrjunarliðs Kára í leiknum var í kringum 20 ár en dómaratríóið var aðeins eldra og virtist stundum ekki alveg ráða við hraðann í leiknum.

Kári með aðra höndina á titlinum eftir stig gegn Augnabliki - Skessuhorn