
Vegna bilunar eru Grundfirðingar beðnir að fara sparlega með rafmagn
Alvarleg rafmagnsbilun er í gangi í aðveitustöð Rarik í Grundarfirði. „Rafmagni var komið á eftir varaleiðum í nótt og varaafl verður keyrt eftir þörfum til að tryggja afhendingaröryggi. Viðskiptavinir eru beðnir að fara sparlega með rafmagn. Unnið er að viðgerð,“ segir í tilkynningu frá Rarik.
Frekari upplýsingar veitir bilunarvakt stjórnstöðvar Rarik í síma 528-9000. Allar tilkynningar má sjá á www.rarik.is/tilkynningar