
Sævar Jónsson með lax úr Hörðudalsá. Ljósm. gb
Yfir hundrað laxar úr Hörðudalsá
„Sæll, já við vorum að koma strákarnir úr Hörðudalsá í Dölum og það gekk vel hjá okkur,“ sagði Sævar Jónsson blikksmiður á Akranesi sem var koma úr ánni og bætti við: „Þegar við fórum heim voru komnir 109 laxar og um 60 bleikjur. Við fengum 14 laxa og sex bleikjur og slepptum nokkrum löxum aftur, veiðin gekk vel hjá okkur. Það eru einhverjir bændadagar eftir í ánni. Veiðin hefur gengið vel hjá okkur í Hörðudal í sumar,“ sagði Sævar.