
Aníta Lísa Svansdóttir til vinstri og Tinna María Ólafsdóttir. Ljósm. mm
Aníta Lísa tekur við markaðsmálunum
Í dag tekur Aníta Lísa Svansdóttir við markaðsmálum og auglýsingaumsjón hjá Skessuhorni - fréttaveitu Vesturlands. Í starfinu felast samskipti við hundruði viðskiptavina sem auglýsa hvort heldur er á fréttavef eða í vikublaði Skessuhorns. Aníta Lísa hefur á liðnum árum mest starfað við knattspyrnuþjálfun en auk þess sinnt ýmsum störfum fyrir yngri landslið kvenna í knattspyrnu. Aníta Lísa er boðin velkomin til starfa. Um leið er Tinnu Maríu Ólafsdóttur þakkað árangursríkt starf við markaðsmál Skessuhorns. Hún flytur nú búferlum og hefur ráðið sig til starfa á auglýsingadeild RÚV.