Kennarar tóku sig vel út í gulu enda hæg heimatökin. Ljósm. fva

Kennarar og nemendur í FVA mættu í gulu

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Á síðastliðnu ári var í fyrsta skipti heill mánuður tileinkaður þessu brýna málefni á Íslandi. Haustið er valið fyrir átakið vegna þess að Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október. Lögð verður áhersla á slagorðin; „Er allt í gulu?“, ,,Er allt í gulu á þínum vinnustað?“ og „Er allt í gulu í þínum skóla?“

Kennarar og nemendur í FVA mættu í gulu - Skessuhorn