Snitzel var ranglega merkt eldað

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á tveimur framleiðslulotum af Ali snitzel frá Síld og fiski vegna rangra merkinga en fyrir mistök var snitzel sem þarfnast eldunar pakkað í umbúðir fyrir fulleldað. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna. Innköllunin á eingöngu við framleiðslulotur: 02.09.24 og 04.09.24, Best fyrir 23.09.24 og 25.09.24. Varan var seld í verlunum Bónus, Krónunnar, Hagkaupa, Samkaupa, Fjarðarkaupum, Kassanum og Kaupfélag V-Húnvetninga.

Snitzel var ranglega merkt eldað - Skessuhorn