
Styttist í lokun 2G og 3G farsímaþjónustu
Fjarskiptastofa vekur athygli á því að nú styttist óðum í að eldri farsímaþjónustu, 2G (GSM) og 3G, verði lokað hér á landi. Í febrúar 2022 var efnt til opins samráðs um áætlun farsímafyrirtækja varðandi lokun þjónustunnar. Þá kom fram að farsímafyrirtækin hygðust öll loka 2G og 3G þjónustum sínum í síðasta lagi fyrir árslok 2025. Ákvörðun um tímasetningu lokunar 2G og 3G þjónustu var tekin af viðkomandi fjarskiptafélögum. Nú þegar hefur verið slökkt á hluta 2G og 3G þjónustu fjarskiptafélaganna í landinu, en markmið þeirra er að lágmarka neikvæð áhrif á viðskiptavini og því er verkefnið unnið í áföngum. Lokun þjónustu hjá einstökum fyrirtækjum er nú ráðgerð með þeim hætti að öll félög eru að draga úr þjónustu og munu loka 3G þjónustu fyrir árslok 2025. Varðandi 2G mun Nova loka í árslok 2024 en Vodafone og Síminn í árslok 2025.