
Svipmynd af fundinum sem haldinn var í gærkvöldi í Samkomuhúsinu við Þverárrétt. Ljósm. aðsend
Íbúar lýsa áhyggjum sínum yfir væntanlegu mælimastri á Grjóthálsi
Íbúar í Norðurárdal og Þverárhlíð í Borgarfirði boðuðu sveitarstjórn Borgarbyggðar á fund í gærkvöldi vegna fyrirhugaðs mælimasturs á Grjóthálsi. Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 7. júní síðastliðinn drög að nýju deiliskipulagi til auglýsingar fyrir mælimastur fyrir vindorkuver á Grjóthálsi. Að afloknum framlengdum auglýsingartíma tók skipulags- og byggingarnefnd deiliskipulagið fyrir að nýju á fundi sínum 6. september og samþykkti þar að vísa því til samþykktar í sveitarstjórn og er málið á dagskrá sveitarstjórnarfundar á morgun, 12. september.