
Akrafjallsvegur 51
Tafir á umferð á morgun á Vesturlandsvegi við Akrafjallsveg
Á morgun, fimmtudaginn 12. september, mun Malbikstöðin vinna að viðhaldi á Vesturlandsvegi, við gatnamót að Akrafjallsvegi, ef veður leyfir. Framkvæmdir hefjast um kl. 9:00 og áætlað er að þeim ljúki um kl. 16:00 – en verkið er háð veðri og gæti því riðlast aðeins. Framkvæmdir stöðva ekki umferð um framkvæmdasvæðið en þrengt verður að umferð um það. Að auki verður takmarkað aðgengi að Akrafjallsvegi frá Vesturlandsvegi um tíma. Stefnt er á að framkvæmdum verði lokið eins fljótt og hægt er,“ segir í tilkynningu. „Við biðjumst velvirðingar á öllum truflunum sem þetta kann að valda.“