Fréttir

true

Kári tryggir stöðu sína á toppi þriðju deildar

Káramenn frá Akranesi unnu öruggan sigur gegn Árbæingum 3:0 í Akraneshöllinni í gær. Með sigrinum styrktu þeir stöðu sína á toppi 3. deildar og eru nú sex stigum frá liðinu í 3. sæti, sem er Árbær. Káramenn byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu fyrsta markið strax á þriðju mínútu leiksins og var þar að verki…Lesa meira

true

Heima í Hólmi er ný tónlistarhátíð í Stykkishólmi

Rætt við Hjördísi Pálsdóttur skipuleggjanda hátíðarinnar Heima í Hólmi tónlistarhátíð verður haldin í Stykkishólmi dagana 12. -13. júlí næstkomandi. Tónleikar verða haldnir við heimahús, í gömlu verbúðinni, Vatnasafninu og Norska húsinu. Blaðamaður Skessuhorns hitti Hjördísi Pálsdóttur að máli en hún hefur verið öflug í því að skapa og skipuleggja hátíðir í Stykkishólmi. Sex hátíðir það…Lesa meira

true

Gott Landsmót hestamanna að baki

Landsmót hestamanna fór fram í Víðidalnum í Reykjavík í síðustu viku og lauk á sunnudaginn. Veðrið lék við mótsgesti, knapa og hross. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni áttu Vestlendingar sína fulltrúa á mótinu, þótt kvótinn hafi reyndar ekki verið fylltur. Af einstökum árangri þeirra stendur upp úr sigur Jakobs Svavars Sigurðssonar úr Dreyra…Lesa meira

true

Blaðaútgáfan í sumar

Nú í júlí verður Skessuhorn gefið út og prentað fjóra fyrstu miðvikudaga mánaðarins. Eftir útgáfu blaðsins í dag eru tvö blöð eftir í mánuðinum. Eftir blaðið sem kemur út 24. júlí fer starfsfólk í tveggja vikna sumarleyfi. Það koma því EKKI út blöð miðvikudagana 31. júlí og 7. ágúst. Starfsfólk kemur úr sumarleyfi 7. ágúst…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi í kvöld og nótt

Seint í kvöld og fram á morgundaginn er í gildi gul viðvörun fyrir Breiðafjarðarsvæðið, einkum þó norðanvert Snæfellsnes. Þar gengur í suðvestan 13-20 m/s og má búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, sem geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Ástæða…Lesa meira

true

Dagarnir eru aldrei eins hjá landverði

Rætt við Þórhildi Maríu Kristinsdóttur, sérfræðing náttúruverndarsvæða á Vesturlandi og Norðurlandi vestra Umhverfisstofnun Íslands opnaði starfsstöð á Hvanneyri formlega 21. febrúar á þessu ári. Þórhildur María Kristinsdóttir, eða Tóta eins og hún er oftast kölluð, er sérfræðingurinn sem heldur utan um hið gríðarlega víðfeðma landsvæði, sem landvörður frá árinu 2016 og sérfræðingur á sviði náttúruverndarsvæða.…Lesa meira

true

Iðnaður er stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar

Í nýrri greiningu sem Samtök iðnaðarins vann kemur fram að iðnaður er stærsta útflutningsgrein hagkerfisins. Útflutningstekjur iðnaðarframleiðslu námu 698 milljörðum króna á síðasta ári, sem er 38% af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins. Í öðru sæti var ferðaþjónusta en útflutningstekjur vegna hennar námu 598 milljörðum, eða 32% af heildinni. Sjávarútvegur kemur í öðru sæti með 352 milljarða króna…Lesa meira

true

Hver fugl rennur til Vonar

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi hefur undanfarin ár sett af stað Fuglasöfnun með því að árangurstengja spilamennsku kylfinga á Meistaramóti félagsins. Meistaramót Leynis 2024 er nú hafið en spilað er dagana 9.-13. júlí. Um Fuglasöfnunina í ár segir á heimasíðu klúbbsins: „Golfklúbburinn hefur frá upphafi notið mikillar góðvildar frá fyrirtækinu Skipavík í Stykkishólmi sem hefur lagt…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um starfsstöðvar stofnana umhverfisráðuneytis á Akranesi

Nú síðdegis í dag mætti Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra á Akranes og ritaði þar undir viljayfirlýsingu við bæjarstjóra Akraneskaupstaðar um staðsetningar stofnana ráðuneytis hans á Akranesi. Um tildrög og tilgang yfirlýsingarinnar segir: „Akraneskaupstaður hyggst standa fyrir endurbyggingu á Mánabraut 20 á svokölluðum Sementsreit á Akranesi. Stefnt er að því að þar rísi…Lesa meira

true

811 útköll slökkviliða á öðrum ársfjórðungi

Slökkvilið landsins sinntu alls 811 útköllum á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Af þeim voru 83 útköll vegna gróðurelda og 385 útköll vegna elds. Þetta er mikil hækkun í útköllum talið vegna gróðurelda frá síðustu árum, en alls voru þau útköll 106 á árinu 2023. Útköllum í umferðinni hefur fjölgað á milli ársfjórðunga. 109 útköll vegna…Lesa meira