
811 útköll slökkviliða á öðrum ársfjórðungi
Slökkvilið landsins sinntu alls 811 útköllum á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Af þeim voru 83 útköll vegna gróðurelda og 385 útköll vegna elds. Þetta er mikil hækkun í útköllum talið vegna gróðurelda frá síðustu árum, en alls voru þau útköll 106 á árinu 2023. Útköllum í umferðinni hefur fjölgað á milli ársfjórðunga. 109 útköll vegna atvika í umferðinni voru á seinni ársfjórðungi en alls voru þau 88 á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta kemur fram á heimasíðu HMS. Slökkvilið sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum þegar kemur að slökkvi- og björgunarþjónustu sveitarfélaga. Dæmi um lögbundin verkefni slökkviliða eru forvarnir, eldvarnaeftirlit, slökkvistarf, reykköfun og björgun á fastklemmdu fólki til dæmis vegna umferðarslysa. Flest slökkvilið sinna einnig öðrum verkefnum eins og sjúkraflutningum, slökkvitækjaþjónustu og björgunarstörfum.