
Viljayfirlýsing um starfsstöðvar stofnana umhverfisráðuneytis á Akranesi
Nú síðdegis í dag mætti Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra á Akranes og ritaði þar undir viljayfirlýsingu við bæjarstjóra Akraneskaupstaðar um staðsetningar stofnana ráðuneytis hans á Akranesi. Um tildrög og tilgang yfirlýsingarinnar segir: „Akraneskaupstaður hyggst standa fyrir endurbyggingu á Mánabraut 20 á svokölluðum Sementsreit á Akranesi. Stefnt er að því að þar rísi bygging sem rúmar ráðhús Akraneskaupstaðar og mögulega fleiri stofnanir sveitarfélagsins. Fyrir liggur að þörf er á að finna nýja aðstöðu fyrir stofnanir umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytisins á Akranesi og lýsir ráðuneytið yfir áhuga á að leigja aðstöðu í nýrri byggingu við Mánabraut 20.“
Þá kemur fram að ráðuneytið lýsi yfir vilja sínum að stuðla að því að í samvinnu við stjórnendur viðkomandi stofnana að hluti starfsstöðva sem heyrir undir ráðuneytið og stofnanir þess verði á Akranesi og staðsett í endurbyggðu húsnæði á Mánabraut 20. Gert er ráð fyrir að unnið verði að þessu verkefni (auk Akraneskaupstaðar) í samvinnu við önnur ráðuneyti, Framkvæmdasýslu – ríkiseignir og fleiri. Loks segir: Á grundvelli viljayfirlýsingarinnar munu samningsaðilar hefja samtal um starfsstöðvar opinberra stofnana á Akranesi.
Þessu til viðbótar má rifja það upp að síðastliðinn fimmtudag var ritað undir viljayfirlýsingu við fjármálaráðuneytið um að ný heilsugæslustöð HVE á Akranesi verði einnig til húsa í væntanlegri nýbyggingu við Mánabraut 20.